Vetrarfrí í Deluxe

Upplifðu kyrrðina og fegurð vetrarins á Klaustri.

Verð á herbergi: 36.400 kr.

Hafðu samband

Kirkjubæjarklaustur hefur sinn sérstaka sjarma að vetri til. Vetrarbirtan, kyrrðin og stórbrotið landslagið skapa einstaka stemningu og bjóða upp á kærkomna tilbreytingu frá amstri hversdagsins.

Njóttu dagsins við náttúruskoðun eða heimsæktu Skaftárstofu, gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs, þar sem áhugaverðar sýningar veita innsýn í náttúru og sögu svæðisins. Heimsókn þangað er tilvalin þegar veðrið kallar frekar á inniveru en útivist.

Að degi loknum er tilvalið að njóta góðs kvöldverðar á veitingastað hótelsins og slaka á í rúmgóðu og þægilegu Deluxe-herbergi.

Innifalið í tilboðinu:

  • Ein nótt í Deluxe-herbergi fyrir tvo
  • Morgunverður fyrir tvo
  • Aðgangur að sundlaug og líkamsrækt á Kirkjubæjarklaustri

Gildistími: 15. nóvember 2026 – 28. febrúar 2027.

Bókanir og gjafabréf: info@hotelklaustur.is

Par nýtur dvalar í Deluxe-herbergi á Hótel Klaustri

Ein nótt í Deluxe-herbergi fyrir tvo

Morgunverður fyrir tvo

Aðgangur að sundlaug og líkamsrækt á Kirkjubæjarklaustri

Skilmálar

  • Verðin miðast við tvo gesti í einu herbergi.
  • Tilboðin gilda á tilgreindum tímabilum og eru háð framboði.
  • Ákveðnir hátíðar- og álagsdagar geta verið undanskildir.
  • Tilboðin gilda ekki samhliða öðrum afsláttum.
  • Drykkir með kvöldverði eru ekki innifaldir.
  • Gjafabréf fyrir tiltekna upplifun eru háð sérstökum skilmálum um gildistíma og innlausn sem kynntir eru við kaup.

Sendu tölvupóst á info@hotelklaustur.is til að bóka dvöl eða kaupa gjafabréf. Við bókun er gott að taka fram hvaða tilboð þú óskar eftir, fjölda gesta og fyrirhugaðar dvalardagsetningar.