Njóttu þess að vera á Klaustri

Hótel Klaustur er nútímalegt og huggulegt 4 stjörnu hótel á Kirkjubæjarklaustri.

Panta gistingu

Hótel Klaustur hlaut alþjóðlega viðurkenningu í World Luxury Hotel Awards 2025 í flokki Luxury Boutique hótel. Viðurkenningin er ein sú virtasta sem hægt er að fá í alþjóðlegri ferðaþjónustu, en hún endurspeglar framúrskarandi þjónustu, gæði aðstöðu og eftirminnilega upplifun gesta. Klaustur Restaurant hlaut einnig viðurkenningu World Luxury Hotel Awards fyrir sjálfbærni.

Herbergin okkar

Kannaðu allt það sem Suðurland hefur uppá að bjóða á meðan þú nýtur þess að dvelja hjá okkur, til dæmis í Delux herbergi eða svítu.

Hvert og eitt þeirra er búið nútímaþægindum til þess að gera dvöl þína sem notalegasta.

Skoða herbergin

Slaka og njóta á Klaustri

Greiddu fyrir 2 nætur og fáðu 3 nóttina frítt auk 15% afsláttar af veitingum, meðan dvöld stendur. Verð gildir af verði á heimasíðu hvort sem er standard eða deluxe.

Skoða

Vordagar á Hótel Klaustri

Gisting í glæsilegu deluxe herbergi ásamt morgunverði í 2 nætur og yndislegur 3ja rétta kvöldverður annað kvöldið auk aðgangs að sundlauginni á Kirkjubæjarklaustri

Verð per herbergi 73.800 kr.-

Skoða

Vor á Hótel Klaustri

Gisting í glæsilegu deluxe herbergi ásamt morgunverði og yndislegur 3ja rétta kvöldverður auk aðgangs að sundlauginni á Kirkjubæjarklaustri

Verð per herbergi 52.800 kr.-

Skoða

Jarðtenging milli jökla

Hvernig væri að koma sér burt úr amstri hversdagsins? Komdu á Hótel Klaustur, slappaðu af og njóttu þess að safna orku í sveitinni á Suðurlandi.

Frá 29.966 ISK

Skoða

Norðurljósin á Hótel Klaustri

Kirkjubæjarklaustur og nágrenni eru meðal bestu staða til þess að líta eftir norðurljósum á Íslandi. Að vera langt frá ljósum borgarinnar gefur upplifuninni meiri sjarma í magnaðri íslenskri náttúru.

Frá 29.966 ISK

Skoða
View of Kirkjubæjarklaustur

Um Kirkjubæjarklaustur

Suðurland hefur upp á margt að bjóða fyrir alla ferðalanga og náttúruunnendur.

Kirkjubæjarklaustur og nágrenni er staðsett á milli tveggja þekktustu jökla Íslands, Vatnajökuls og Mýrdalsjökuls. Svæðið er hluti af Kötlu jarðvangi og þar er Skaftárstofa – gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs.

Ýmis náttúruundur eru umhverfis Kirkjubæjarklaustur. Milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs er Eldhraun sem er vestari hluti Skaftáreldahrauns. Hraunið er einstakt ásýndar en það er þakið þykkum grænum mosa. Það varð til í Skaftáreldum árið 1783 er það rann úr Lakagígum sem eru annað náttúruundur í nærumhverfi Kirkjubæjarklausturs.

Einnig má nefna Systrastapa og Fjaðrárgljúfur en það er um það bil tveggja kílómetra langt og 100 metra djúpt gljúfur þar sem Fjaðrá rennur, kemur af fjöllum og niður vestan megin gljúfursins í fallegum fossi.

Kirkjubæjarklaustur er tilvalinn áfangastaður fyrir fólk sem vill komast burt úr borginni og út í náttúruna. Þá er ljúft að dvelja á Hótel Klaustri sem er nútímalegt og huggulegt 4 stjörnu hótel.

Hótel Klaustur er staðsett nálægt mörgum gönguleiðum og umvafið kyngimagnaðri náttúru. Vegna staðsetningar sinnar er Kirkjubæjarklaustur frábært stopp milli Reykjavíkur og Jökulsárlóns þar sem hægt er að sækja mikilvæga þjónustu eins og bensínstöð, banka, pósthús og stórmarkað, svo ekki sé minnst á að Kirkjubæjarklaustur er þekkt fyrir að vera með besta veður á Íslandi.

Um okkur

Leiðin til Kirkjubæjarklausturs

Hótel Klaustur er frábærlega staðsett á Suðurlandi, á milli Reykjavíkur og Hafnar. Á leiðinni frá Reykjavík til Klausturs er margt fallegt að sjá, eins og Seljalandsfoss, Skógafoss og Eyjafjallajökul. Þegar þú kemur á áfangastað er enn meira að sjá en Hótel Klaustur er í stuttri göngufjarlægð eða akstursfjarlægð frá nálægum gönguleiðum til Jökulsárlóns og Skaftafells.

KANNAÐU UMHVERFIÐ

Kirkjubæjarklaustur er heillandi sveitaþorp í Skaftárhreppi. Í nánasta nágrenni er margt að sjá og upplifa og oftar en ekki þarf einungis að ganga eða keyra stutta vegalengd frá Hótel Klaustri í afþreyingu.

Veitingastaður og bar

Ljúfmeti frá matreiðslumeistaranum okkar

Á veitingastaðnum okkar færð þú frábæran morgunverð og dýrindis kvöldverð. Matargerðin er innblásin af Íslandi og 80% hráefna upprunnin á svæðinu. Matreiðslumeistarinn okkar Einar Björn Halldórsson gefur matnum þó alþjóðlegan blæ en hann sækir innblástur sinn í einnig til þeirra fjölmörgu landa sem hann hefur heimsótt.

Við bjóðum þér að njóta fordrykkjar á hótelbarnum okkar áður en þú hefur matarupplifun þína: Notalegur barinn er opinn frá hádegi til miðnættis en þar færð þú kokteila sem búnir eru til af ástríðu og sköpunargáfu og gjarnan með hráefnum úr héraði.

Opnunartími

Mánudaga – Sunnudaga
17:00 – 21:30

Chocolate mousse with ganache and blueberry sorbet
Mushroom rissoto
Quotes
Quotes
Klaustur
What others say

Great service in a convenient location

Room is spacious. Bathroom is clean and they provide shower gel / handwash gel / shampoo from L’occitane!

Stars

Quotes
Quotes
Klaustur
What others say

Lovely Hotel Friendly informative staff.

We received excellent service. The rooms were very clean and comfortable. Very good selection of choices for evening meal. Breakfast is self service, again with an excellent choice.

Stars

Quotes
Quotes
Klaustur
What others say

Love this hotel

Great cosy hotel. Loved every minute there. Great amenities and very friendly people around. Loved their little bar, loved their decorations in all corridors. Rooms are comfortable and offer a great view of the mountains. Very good breakfast! And all the ambience is so romantic.

Stars