Vetrarfrí í Deluxe
Upplifðu kyrrðina og fegurð vetrarins á Klaustri.
Verð á herbergi: 36.400 kr.
Hafðu sambandKirkjubæjarklaustur hefur sinn sérstaka sjarma að vetri til. Vetrarbirtan, kyrrðin og stórbrotið landslagið skapa einstaka stemningu og bjóða upp á kærkomna tilbreytingu frá amstri hversdagsins.
Njóttu dagsins við náttúruskoðun eða heimsæktu Skaftárstofu, gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs, þar sem áhugaverðar sýningar veita innsýn í náttúru og sögu svæðisins. Heimsókn þangað er tilvalin þegar veðrið kallar frekar á inniveru en útivist.
Að degi loknum er tilvalið að njóta góðs kvöldverðar á veitingastað hótelsins og slaka á í rúmgóðu og þægilegu Deluxe-herbergi.
Innifalið í tilboðinu:
- Ein nótt í Deluxe-herbergi fyrir tvo
- Morgunverður fyrir tvo
- Aðgangur að sundlaug og líkamsrækt á Kirkjubæjarklaustri
Gildistími: 15. nóvember 2026 – 28. febrúar 2027.
Bókanir og gjafabréf: info@hotelklaustur.is
Ein nótt í Deluxe-herbergi fyrir tvo
Morgunverður fyrir tvo
Aðgangur að sundlaug og líkamsrækt á Kirkjubæjarklaustri
Skilmálar
- Verðin miðast við tvo gesti í einu herbergi.
- Tilboðin gilda á tilgreindum tímabilum og eru háð framboði.
- Ákveðnir hátíðar- og álagsdagar geta verið undanskildir.
- Tilboðin gilda ekki samhliða öðrum afsláttum.
- Drykkir með kvöldverði eru ekki innifaldir.
- Gjafabréf fyrir tiltekna upplifun eru háð sérstökum skilmálum um gildistíma og innlausn sem kynntir eru við kaup.
Sendu tölvupóst á info@hotelklaustur.is til að bóka dvöl eða kaupa gjafabréf. Við bókun er gott að taka fram hvaða tilboð þú óskar eftir, fjölda gesta og fyrirhugaðar dvalardagsetningar.