Gjafabréf að eigin vali – góð gjöf allt árið
Gefðu upplifun – leyfðu viðtakandanum að velja.
Frá 15.000 kr.
Hafðu sambandGóð gjöf þarf ekki alltaf að vera bundin við ákveðinn dag eða tiltekna upplifun.
Með fjárhæðargjafabréfi frá Hótel Klaustri gefur þú þeim sem þér þykir vænt um frelsi til að velja hvernig þeir njóta gjafarinnar.
Hvort sem það er notaleg gisting, ljúffengur kvöldverður eða lengri dvöl á Suðurlandi, þá getur viðtakandinn nýtt inneignina í það sem honum þykir skemmtilegast.
Veldu fjárhæðina sem hentar þér:
- 15.000 kr.
- 25.000 kr.
- 50.000 kr.
- 75.000 kr.
- Eða aðra fjárhæð að eigin vali
Fjárhæðargjafabréfin:
- Gilda allt árið í gistingu og veitingar hjá Hótel Klaustri.
- Eru ekki bundin við ákveðna herbergjategund eða árstíð.
- Nýtast sem greiðsla upp í gildandi verð á þeirri þjónustu sem viðtakandinn velur.
- Má nýta í einu eða fleiri skiptum þar til inneignin er fullnýtt.
Bókanir og kaup á gjafabréfum: info@hotelklaustur.is
Skilmálar – Fjárhæðargjafabréf
- Gilda allt árið og nýtast sem greiðsla fyrir gistingu og veitingar á Hótel Klaustri.
- Gilda í fjögur ár frá útgáfudegi.
- Hægt er að nýta inneignina í fleiri en einu skipti.
- Fyrirfram þarf að bóka gistingu og er hún háð framboði á herbergjum.
- Fjárhæðargjafabréf veita ekki sjálfstæðan afslátt af gildandi verði.
Sendu tölvupóst á info@hotelklaustur.is til að kaupa gjafabréf. Við kaup á fjárhæðargjafabréfi tekur þú fram þá upphæð sem þú vilt gefa.