Tvær nætur á Klaustri

Dveldu lengur og upplifðu meira.

Verð á herbergi: 58.400 kr.

Hafðu samband

Það er óþarfi að flýta sér í gegnum Suðurland þegar svo margt er að sjá og upplifa.

Með tveggja nátta dvöl á Hótel Klaustri gefst þér góður tími til að skoða náttúruperlur svæðisins, njóta samverunnar og slaka á í notalegu umhverfi.

Eyddu deginum í að skoða Fjaðrárgljúfur, Systrafoss, Kirkjugólf og Dverghamra. Nýttu síðan tækifærið til að fara í dagsferð í Skaftafell eða að Jökulsárlóni og upplifa stórbrotið landslagið sem jöklar og eldgos hafa mótað.

Ef veðrið býður ekki upp á útivist er tilvalið að heimsækja Skaftárstofu, gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs. Þar er hægt að verja góðri stund innandyra, skoða fræðslusýningar og fræðast um náttúruna, eldsumbrotin og sögu svæðisins.

Þegar komið er aftur á hótelið er tilvalið að setjast niður á veitingastaðnum okkar, njóta góðs matar og rifja upp upplifanir dagsins.

Innifalið í tilboðinu:

  • Tvær samfelldar nætur í Standard-herbergi fyrir tvo
  • Morgunverður fyrir tvo báða morgnana
  • 5.000 kr. inneign sem nýtist í mat á veitingastað hótelsins meðan á dvöl stendur

Gildistími: 15. nóvember 2026 – 15. maí 2027.

Bókanir og gjafabréf: info@hotelklaustur.is

The Standard Room

Tvær samfelldar nætur í Standard-herbergi fyrir tvo

Morgunverður fyrir tvo báða morgnana

Bar og setustofa á Hótel Klaustri

5.000 kr. inneign í mat á veitingastað hótelsins

Skilmálar

  • Verðin miðast við tvo gesti í einu herbergi.
  • Tilboðin gilda á tilgreindum tímabilum og eru háð framboði.
  • Ákveðnir hátíðar- og álagsdagar geta verið undanskildir.
  • Tilboðin gilda ekki samhliða öðrum afsláttum.
  • Drykkir með kvöldverði eru ekki innifaldir.
  • Gjafabréf fyrir tiltekna upplifun eru háð sérstökum skilmálum um gildistíma og innlausn sem kynntir eru við kaup.

Sendu tölvupóst á info@hotelklaustur.is til að bóka dvöl eða kaupa gjafabréf. Við bókun er gott að taka fram hvaða tilboð þú óskar eftir, fjölda gesta og fyrirhugaðar dvalardagsetningar.